hmm

Jamm, yet another day at the trenches. Sit hérna og er að setja upp Windows á ný. Ætla að hvíla mig á Linuxinum í bili. (fyrir þá sem það skilja)
Anyway, Toshiba má eiga það að það er ekki mikið mál að setja vélarnar frá þeim upp á nýtt. Tók einungis um 15 mínútur og svo auðvitað uppfærslur sem ég sæki til Microsoft. Í heild ca. 1 og hálfur tími. Það er af sem áður var þegar þetta tók heilan dag og samt vantaði alltaf einhvern driver (rekil) til að allt gengi.

Dísa byrjaði í skólanum í dag og er bara nokkuð kát með þetta. Hún er í bekk með tveimur vinkonum úr leikskólanum þannig að hún small inn um leið. Við sátum svo allir foreldrarnir og hlustuðum á skólastjórann og hann sagði margt merkilegt og virðist bara nokkuð skynsamur gutti.

Jæja best að halda áfram í Windows uppfærslu deildinni. heyrumst síðar og já já ég skal vera skemmtilegri næst.

kveðja,

Arnar Thor

Ummæli

Vinsælar færslur